“Nú sit ég hérna klukkan 7:23 og
hugsa hverning árið 2008 muni vera.
Mun einhver frægur deyja árið 2008.
Mun vera framinn einhver hryðjuverk
árið 2008, vonum ekki.

Mun eitthvað stórkostlegt gerast fyrir
okkur eða vont árið 2008.
Hvað mun gerast hugsa ég, og lít á klukkuna, 7:30.

Hva haldið þið að muni gerast? Allavega er
eitt sem ég vona og það er að árið 2008 muni vera besta árið sem ég hef lifað.
Það er einskonar áramótaheiti mitt að vera
glaður og lifa lífinu eins og ég vil.

Kæru hugarar þá vona ég að árið 2008 muni
vera árið ykkar líka. Takk fyrir mig.

Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár.

Klukkan 7:37.”