Hvað er að vera nörd? Hvað er að vera nörd?

Ég hef verið að hugsa um þessa spurningu lengi
og hef ekki fengið nein svör hjá neinum sem ég
spyr. Ég ætla að reyna að svara þessu sem best
þar sem að ég hef verið í “vinsæla” hópnum (
sem er frekar fámennur ) og er núna í
“lúðalega” hópnum.

“Nörd” er staðalímynd af fólki sem nýtur
annarra hluta og áhugamála en aðrir, t.d. í
staðinn fyrir íþróttir ( sem ég hata ) þá
finnst “nördum” gaman í tölvum eða borðspilum
og í staðinn fyrir að reyna við stelpur eins og
graðir hundar, eða hreinlega áreita fólk út af
engu, þá finnst þeim gaman að læra nýja hluti
og nýta sér þá seinna, “nördar” gera líka mikið
af því að lesa góðar bækur.

Hinn “venjulegi” “nörd” fær oftast þetta
viðhengi við sig bara út af smávægilegum hlutum
eins og útaf bólum, gleraugum, að fylgja ekki
tískustraumum, eiga marga tölvuleiki ( ég var
nörd vikunnar fyrir þetta 30 nóvember 2006 í
game tíví), spila cs(Counter-Strike) eða
WoW(World of Warcraft), kunna meira á tölvur en
aðrir, lesa myndasögublöð og fara í Nexus eða
Ground Zero.

Jafnvel þótt að það sé skrítið erum við flestir
“nördarnir” stoltir af því að vera “nördar”,
þrátt fyrir endalausa andlega og líkamlega
áreitni og að vera staðalímynd af “skrítnu”
fólki þá erum við stolt af því, við þurfum ekki
að leita okkur að láglaunavinnu, við getum
hlustað á það sem við viljum - ekki það sem
aðrir vilja að við hlustum á, við getum einnig
klæðst því sem að við viljum. Þetta eru kostir,
en því miður eru gallar, maður gæti ekki þolað
þrýstinginn - og endað sem brotin manneskja sem
misskilur allar tilfinningar og lokar sig af
frá heiminum.

En ef að þið eruð af “vinsæla” hópnum, þá ef að
þið þekkið okkur, þá erum við viðkunnalegt
fólk, alveg eins og aðrir, nema með örðruvísi
smekk á hlutum, við hópum okkur saman,
íþróttafólk hópar sig saman, tónlistarfólk
hópar sig saman, gothar hópa sig saman og
margir fleiri, það er það sem að gerir okkur
mennsk, ekki væri það gaman ef að allir væru
eins, er það nokkuð? Þá væru allir á sama blett
á jörðinni.

Hugsið þið um þetta og gefið mér svör ef að þið
viljið, skítkast vel þegið, ég er ekki búinn að
semja grein í langann tíma.

Come to the Dark side, it’s the easiest way, we
got free ipods.

NERD = Nonhuman Earth Rival Dominator.