<b><i>Þú Gerir Þín Eigin Örlög</b></i>

Mig langar að segja ykkur frá því hvernig ég er að bæta mitt líf og kannski lærið þið eithvað af þessu.
Líf mitt var þannig að ég hugsaði allt á neikvæðann hátt, ekkert gat gengið upp hjá mér, ég missti manneskjuna sem ég innilega elskaði útaf lífinu, tölvan mín bilaði, iPodinn minn bilaði, ekkert ætlaði að ganga upp, ég var við það að detta útúr skóla, ég skar mig og svona gæti ég haldið áfram í svolítinn tíma en ég held að allir sjá myndina.
Ég nota mikið myndlýsingar og þið verðið bara að leggja ykkur fram við að skilja þær.


<i><b>Ný Sjón</b></i>

Í dag reyni ég að lýta á hlutina í öðru ljósi. Mínar minningar eru núna í dag þarna til þess eins að ég geti lært af þeim, nota þær sem reynslu. Ég missti allt sem var mér kært, en ég verð samt að lýta á þetta sem reynslu, mistökin eru til að læra af þeim er sagt, þú lærir af miklu meira en bara mistökunum, þú lærir af öllu sem þú gerir. Lífið er til að læra af því.
Ég er núna að sjá fullt af hlutum sem ég átti að gera öðruvísi. Lífið hefur tilgang, allir eru sammála um það. En enginn veit svarið, enda er það ekki svarið sem skiptir máli, heldur hvernig það er fundið. Að mínu mati er tilgangur með öllu lífi dauði. Sá sem nýtur ekki lífsins kemst að svarinu kannski á endanum en honum fannst ekkert gaman að finna það.
Þú verður að reyna að lýta á hlutina með jákvæðu sjónarhorni, en ekki alltaf neikvætt. Til að ná sér uppúr sínum slæmu hugsunum þarf maður að sjá lengra en þær hugsanir. En maður sér ekki lengra en maður skylur ekki. Þarf að getað séð jákvæðan punkt við hlutina. Þessa jákvæðu hluti verður þú sjálfur að búa til, það gerir það enginn fyrir þig.
Þú mátt ekki vera hræddur við að standa upp hafa samband við einhvern og biðja um hjálp ef þú þarft á henni að halda. Þetta er einn af þeim hlutum sem þú lærir þegar þú loksins þorir að gera þá. Ég gerði það, ég bað um mína hjálp og í dag líður mér miklu betur en ég gerði fyrir einungis innan við mánuði, en líf mitt breyttist frá því, allt varð léttara og skemmtilegra því mér var sýnt að það væri til önnur leið til að lifa lífinu og mér var sagt hvernig sá aðili, hann elskulegi bróðir minn, fór að því að breyta sínu lífi.
Að sýna fordæmi er ekki metið nóg í þessum heimi í dag. Mér persónulega finnst það góður árangur að ná að hjálpa einhverjum, þó það væri ekki nema ein manneskja.
En hvar á ég að hætta að reyna að láta sér líða betur, aldrei, þú hættir aldrei, viðmiðið hækkar jafnóðum og þér líður betur. Það er bara þannig.

<i>“Take care to get what you like or you will be forced to like what you get.”</i>

<i><b>Þú Breytir Þér</b></i>

Þú breytir þér, enginn annar gerir það fyrir þig. Þú breytir líka ekki öðrum. Hér er smá dæmi handa ykkur.
Þú ýtir manneskju eitthvert, þú tosar manneskju eitthvert, eða þú getur líka beðið hana að koma, hvað af þessu er léttast ? Þetta kennir okkur það að sama hversu mikið við reynum að þvinga á manneskju til að breyta sér eða gera eitthvað sem hún vill ekki þá á hún aldrei eftir að gera það með góðu, hún þarf að vilja að “koma” í þetta ástand sem þú ert að reyna að sýna henni.
Ég og mín fyrrverandi, eina stelpan sem ég hef elskað og geri það enn, enduðum með því að hætta saman útaf svona, ég sé það í dag en sá það ekki þá, það er einsog ég hafi loksins þorað að opna augun og takast á við minn eiginn ótta. Ég reyndi að breyta henni, ég gerði þá villu að ég reyndi að breyta vittlausri manneskju, það var ekki henni sem ég átti að breyta það var ég sem átti að breyta mér og hún sér.
Fólk verður að leyfa fólki að draga sína skítahrúgu sjálft. Þú átt ekki að vera að draga skítahrúgur annara manneskja, leyfðu því sjálft að gera það. Ef þú hjálpar því með því að draga hana fyrir þau þá líður þér verr og um leið og þú gefst upp þá þarft hún að taka hana aftur. Þú átt að reyna að sýna fólki hvernig þú losnaðir við þína skítahrúgu, sýna því hvernig það gæti náð að losa sig við sína.
Ég get sagt einhverjum hvernig ég losnaði við mína skítahrúgu. Þú mátt aldrei fara aftur niður á stig einhvers annars til að reyna að sýna því hvernig þú fórst að því þá ertu kominn aftur á byrjunar reit. En ekki reyna að neyða því uppá fólkið það verður að velja sjálft að breyta hugafari sínu, þú breytir því ekki fyrir það annars byggir það sig uppá því að vera með þig þarna til að hjálpa sér í gegnum allan sinn skítapakka og þá er það að draga þig niður.
Tökum sem dæmi að ef þú og vinkona þín eruð að labba á svelli og annað ykkar dettur þá hjálpar þú henni upp. Hún dregur þig ekki niður með þér. Ef þið dettið bæði þá hjálpar þú henni ekki upp strax, þú stendur upp og hjálpar svo henni upp. Það sama á um lífið. Að reyna að hjálpa manneskju að standa upp á sama tíma og þú ert að gera það er erfitt, það er sama sem ómögulegt. Ef þú reynir að hjálpa fólki þegar þú ert ekkert betra staddur en það þá ertu að reyna að ýta því á undan þér. Ef þú reynir það eru góðar líkur á því að þér eigi eftir að mistakast og standa uppi alls laus og veist ekki hvað þú átt að gera.. Það eru ekki betlarar sem koma öðrum betlurum áfram, það er ríkara fólkið sem sér eitthvað við þá, vorkunn, von, eitthvað er það. Ekki draga það, sýndu því.
Þetta virkar miklu betur heldur en að reyna að bjarga einhverjum með því að draga eða ýta þeim. Það virkar alltaf best að biðja manneskjuna að koma, það virkar ekki neitt að gera eitthvað annað. Stundum þurfum við samt að skilja manneskjuna eftir, en það getur verið bara tímabundið.

<i>“I will do the best that I can, to be a good example of man.“</i>

<i><b>Sleppa Fólki</b></i>

Að sleppa fólki það er eitt af því erfiðasta sem þú getur nokkurn tímann lent í því að þurfa að gera. Ég vill ekki sleppa vinum mínum, skilja þá eftir. En eru þeir virkilega vinir mínir ef þeir eru þarna og koma í veg fyrir að ég geti notið lífsins. Halda mér niðri, draga mig niður með sér í kviksyndi. Stundum verðum við að sleppa fólkinu sem er okkur kærast.
Þú mátt aldrei fara til baka á eftir einhverjum. Þú átt að halda þínu og svo getur sýnt þeim hvernig þú fórst að og þá kannski komist þíg á sama stig á endanum, en munið að þið getið ekki þvingað hann. Þegar þið eruð bæði á sama stigi eftir þá er allt betra. Þegar þið “kynnist” aftur þá getur það orðið sem aðrar manneskjur, þegar hugurinn er að breyta sér þá breytist margt með honum.
Að einhver eigi einhvern betra skilið þýðir ekki að það geti orðið sama manneskjan, sami líki, sama útlit en annar maður að því leyti að hann er búinn að breytast, hann getur orðið betri maður, innri fegurð hjá fólki getur breyst jafn fljótt og uppáhalds lag.
Þegar maður er að snúa huganum á hvolf, eða réttara sagt að snúa hinum aftur rétt þá gætur þú mist einhverja vini, suma heldurðu í því þeir eru virkilega vinir þínir, svo gæti það líka gerst að þú farir að kynnast nýju fólki.
Þú getur sýnt vinum þínum að þetta sé hægt, að sýna forystuna en ekki þvinga hana til að elta, það er ekkert sem bannar henni að vera í sýnu ástandi og þú þínu. Tveimur manneskjum sem líður vel saman, en leið illa fyrir, líður alltaf verr heldur en tveimur manneskjum sem líður vel saman og leið vel fyrir. Þú átt að leita eftir fólki sem dregur þig ekki niður, fólki sem opnar hug þinn og hjarta fyrir betra lífi. Þú myndir ekki fara í kletta klifur með fjögur, tuttugu kílóa lóð í bakpokanum, afhverju að gera það þá í lífinu ?

<i>“Someday I´ll forget the color of your eyes, the sound of your voice will be unfamiliar.
Someday I´ll forget that I once loved you, the feelings will have faded, someday I´ll forget.”</i>

<i><b>Hugsun</b></i>

Hugsið áður en þið farið í partý, í bíó, út að borða, hitta vinina eða bara hvað sem þið eruð að fara að gera “Hvernig vil ég að mér líði meðan ég er að þessu?” ef þú hugsar að þér eigi eftir að líða vel, og innilega trúir því, heldurðu að það verði betra ? skemmtilegra ? jafnvel þægilegra ? Smá dæmi, ef þú hugsar áður en þú ferð að drekka ég ætla ekki að verða full/ur, verðurðu full/ur ? ef þú hugsar áður en þú ferð að drekka, ég ætla að verða fullur og skemmta mér, hvað á eftir að gerast ?
Það er mjög erfitt að temja sér þennann hugsunar hátt. Það reynir mjög mikið á þig andlega en það sem þú færð til baka er þess alveg virði. Ég er búinn að vera að temja mér svona hugarfar í soldinn tíma núna og mér hefur aldrei liðið betur.
En skilyrðið er að þú verður innilega að trúa því að þú getir þetta. Enn og aftur byggist þetta samt á því að þú viljir breyta þér. Hugsið ykkur um þegar þið eruð með vinum ykkar. Hugsið líka, hvað vill ég fá útúr vinskapnum? ef þeir gera ekkert annað en að draga ykkur niður þá er kannski kominn tími til að sleppa þeim. Fynna sér nýja vini á sama stigi það er alveg ótrúlga erfitt og sárt, en það borgar sig. Eða þú getur líka verið meira með þeim vinum sem þú átt fyrir sem láta þér líða vel. Þú ert alltaf efstur í röðinni yfir merkilega hluti í heimi. Verðið líka að hugsa það.

<i>“I think I´m the first man to sit in the top of the world.”</i>

<i><b>Líða Vel</b></i>

Látið ykkur líða vel, sýnið öðrum hvað ykkur líður vel og þeir munu elta.
Er talað um að Móses hafi rekið fólkið á undan sér, nei hann stóð alltaf fremstur og fólkið elti.
Fólk þarf oft að getað séð að það er hægt að gera annað. Lífið er ekki eins og í bíómyndum, hlutirnir gerast bara ekki, þú þarft að gera þá.
Ekki bíða eftir því að eitthvað gerist. Hringið í vini ykkar sem þið hafið ekki talað við lengi, ekki vera hrædd við það. Getið þið búist við því að hann eða hún hringi í ykkur endilega fyrst ? sýnið fordæmi og aðrir munu reyna það . Ég er eiginlega alveg viss um það að þessi vinur eða vinkona eigi eftir að hringja í ykkur til baka.
Það þarf alltaf einhver að vera fyrstur til að gera hlutina. Sem dæmi það þorir enginn að hringja á lögguna og segja frá einhverjum dópsölum af því allir eru of hræddir, það er önnur ástæða fyrir því að ég geri það, en það er mjög stór partur af þeim sem vita um dealera sem þora ekki að hringja útaf því sem þeir gera. Hringið ekki segja neinum að þið hafið hringt, hringið með nafnleynd og þá eruð þið örugg. Ekki vera hrædd. Ekki vera hrædd við að prófa nýja hluti, þeir gætu kannski virkað betur en þig grunar.

<i>“Never be afraid to try something new. Remember, amateurs built the ark professionals built the Titanic”</i>


<i>Val</i>

Þú hefur alltaf val, val til að skilja hlutina einsog þú vilt. Umhverfið hefur ekki meiri áhrif á þig en þú velur, það velur það enginn fyrir þig.
Ég get valið að hata fyrrverandi kærustuna mína fyrir hluti sem hún gerði mér, en ég geri það ekki. Ég ákveð að fyrirgefa henni.
Þegar þú lætur umhverfið hafa mikil áhrif á þig og það kemur oft þannig út að þér líður illa, er þá ekki kominn tími til að láta umhverfið bara vera þarna.
Ég tók það val að hafa samband og fá hjálp. Þú hefur það líka. Alveg einsog allir aðrir, hvað er að stoppa þig? Hræðslan? Allt byggist upp á vali, valið til að skilja hluti á réttan hátt. Þú verður að passa þig á því að heyra ekki það sem þú vilt heldur það sem er að gerast. Þú túlkar hluti eftir því hvernig þú vilt það, þú velur hvernig þú gerir það.

<i>”laugh often, Dream big, Reach fot the stars!”</i>

<i><b>Sýna Hamingju</b></i>

Sýnið þeim leiðina og þau munu fara hana. Þau geta valið hvort þau elti og fari af stað, þrátt fyrir að leiðin sé erfið og strembin, þá er hægt að fara hana. Fólk velur hvort það elti þig í gleðina, í hamingjuna. En einhver verður að fara fyrstur. Vera fyrstur til að fara nýja leið. Er ekki kominn tími til að rífa sig uppúr tölvustólnum og gera eithvað ? Hætta að sitja þarna og vorkenna sjálfum sér. Hugsið til baka, ef þið hafið nýlega verið með stelpu og þið voruð með þennann hugsunar hátt, er það besta sem þú manst eftir þegar þið töluðuð um hvað lífið hafi verið slæmt?
Þetta er einsog að labba í snjó, alltaf léttara að labba leiðina ef einhver er búinn að fara hana, þrátt fyrir að það séu ekki nema nokkur skref. En þú hefur valið að biðja einhvern um hjálp og vilt fá að vita hvernig hann fór að því að líða svona vel þá þarft þú samt að gera hlutina sjálfur til að þeir gerist og þú þarft að vilja að þetta breytist.
Þegar þið eruð komin í gott ástand þá fyrst getið þið farið að sýna örðum sem biðja um það að vita hvernig þú fórst að því að láta þér líða betur. Ég held að allir þurfi að sjá einhvern tímann hvernig þeir geta orðið.

<i>”If you see a friend without a smile; give him one of yours.”</i>

<b><i>Að Þekkja Muninn</i></b>

Það erfiðasta við að vera kominn í svona gott ástand er að getað greint á milli hvenar vinir ykkar eru að biðja ykkur um hjálp sem hamingjusama manneskju eða hvort hún sé að því sem vinur. Sem sagt hvort hún sé að leyta eftir því að þú sitjir og hlustir á vandamálin hennar og átt að vorkenna henni eða hvort hún sé að leyta ráða.
Það er vanalega mjög erfitt að greina muninn þarna á milli og ykkur á eftir að líða einsog geimveru að vera í einhverjum svona vandræðum en það er fyrir hið góða, fyrir ykkur. Þér á eftir að líða einsog geimveru en verður bara að þola það. Vinir fara kannski en það geta komið nýjir og betri í staðinn.

<i>“Trust yourself. You know more than you think you do.”</i>

<b><i>Quotes</i></b>

Mér fynnnst þessu quotes passa við það sem málið snýst um…

<i>“Be a first rate version of yourself, not a second rate version of someone else.”</i>

<i>“It isn´t what you have, or who you are, or where you are, or what you are doing that makes you happy or unhappy. It is what you think about.”</i>

<i>“Only as high as I can reach can I grow, only as far as I seek can I go, only as deep as I look can I see, only as much as I dream can I be.”</i>

<i>“Write it on your heart that every day is the best day in the year.”</i>

<i>“The mind can make a heaven out of hell or a hell out of heaven”</i>

<i>“I dreamed a thousand new paths… I woke and walked my old one”</i>

<i>“A true friend sees the good in everything, and brings out the best in the worst of things.”</i>

<i>“A real friend is one who walks in when the rest of the world walks out.”</i>

Þessi quotes eru tekin af síðunni <i>www.thinkexist.com</i>


Ég vill fá að tjá mig meira persónulega hérna í endann.
<i>“I´ve been through hell and back”</i> og það er satt, ég hef fengið að kynnast því hvernig helvíti er, en hugur minn bjó það til. Hugur minn gat líka komið mér þaðan út, búið til leið út sem ég labbaði í gegnum, þurfti bara að láta segja mér að hann gæti gert það.
Ég er búinn að tapa miklu á því að gera þetta ekki, hugsa jákvætt um hlutina. En ég er búinn að öðlast mikla reynslu og búinn að læra mikið. Ég vona að fólk taki engu illa sem ég er búinn að vera að segja hérna að ofan því þetta er sannleikurinn, allavega sannleikurinn minn. Gangi ykkur bara sem best með lífið (og að skilja þetta).

Ég vill taka það fram þrátt fyrir það að ég tali beint til ykkar sem lesa þetta í allri greinini þá vill ég taka það fram að þið ákveðið alveg hvernig áhrif hún hefur á ykkur.
Hvað þið gerið með þessar upplýsingar.


Í trú um það besta <b><i>Grogg</b></i