Þú Gerir Þín Eigin Örlög
(Partur 2/3)

Mig langar að segja ykkur frá því hvernig ég er að bæta mitt líf og kannski lærið þið eithvað af þessu.
Líf mitt var þaning að ég hugsaði allt á neikvæðann hátt, ekkert gat gengið upp hjá mér, ég misti manneskjuna sem ég innilega elskaði útaf lífinu, talvan mín bilaði, iPodinn minn bilaði, ekkert ætlaði að ganga upp, ég var við það að detta útúr skóla, ég skar mig og svona gæti ég haldið áfram í soldinn tíma en ég held að allir sjá myndina.
Ég nota mikið myndlýsingar og þið verðið bara að leggja ykkur fram við að skilja þær.


Sleppa Fólki

Að sleppa fólki það er eitt af því erfiðasta sem þú getur nokkurn tímann lent í því að þurfa að gera. Þú vill ekki sleppa vinum mínum, skilja þá eftir. En eru þeir virkilega vinir mínir ef þeir eru þarna og koma í veg fyrir að ég geti notið lífsins. Halda þér niðri, draga þig niður með sér í kviksyndi. Stundum verðum við að sleppa fólkinu sem er okkur kærast.
Þú mátt aldrei fara til baka á eftir einhverjum. Þú átt að halda þínu og svo getur sýnt þeim hvernig þú fórst að og þá kannski komist þíg á sama stig á endanum, en munið að þið getið ekki þvingað hann. Þegar þið eruð bæði á sama stigi eftir þá er allt betra. Þegar þið “kynnist” aftur þá getur það orðið sem aðrar manneskjur, þegar hugurinn er að breyta sér þá breytist margt með honum.
Að einhver eigi einhvern betra skilið þýðir ekki að það geti orðið sama manneskjan, sami líki, sama útlit en annar maður að því leyti að hann er búinn að breytast, hann getur orðið betri maður, innri fegurð hjá fólki getur breyst jafn fljótt og uppáhalds lag.
Þegar maður er að snúa huganum á hvolf, eða réttara sagt að snúa hinum aftur rétt þá gætur þú mist einhverja vini, suma helduru í því þeir eru virkilega vinir þínir, svo gæti það líka gerst að þú farir að kynnast nýju fólki.
Þú getur sýnt vinum þínum að þetta sé hægt, að sýna forystuna en ekki þvinga hana til að elta, það er ekkert sem bannar henni að vera í sýnu ástandi og þú þínu. Tveimur manneskjum sem líður vel saman, en leið illa fyrir, líður alltaf verr heldur en tveimur manneskjum sem líður vel saman og leið vel fyrir. Þú átt að leita eftir fólki sem dregur þig ekki niður, fólki sem opnar hug þinn og hjarta fyrir betra lífi. Þú myndir ekki fara í kletta klifur með fjögur, tuttugu kílóa lóð í bakpokanum, afhverju að gera það þá í lífinu ?

“Someday I´ll forget the color of your eyes, the sound of your voice will be unfamiliar.
Someday I´ll forget that I once loved you, the feelings will have faded, someday I´ll forget.”


Hugsun

Hugsið áður en þið farið í partý, í bíó, út að borða, hitta vinina eða bara hvað sem þið eruð að fara að gera “Hvernig vil ég að mér líði meðan ég er að þessu?” ef þú hugsar að þér eigi eftir að líða vel, og innilega trúir því, heldurðu að það verði betra ? skemmtilegra ? jafnvel þægilegra ? Smá dæmi, ef þú hugsar áður en þú ferð að drekka ég ætla ekki að verða full/ur, verðurðu full/ur ? ef þú hugsar áður en þú ferð að drekka, ég ætla að verða fullur og skemmta mér, hvað á eftir að gerast ?
Það er mjög erfitt að temja sér þennann hugsunar hátt. Það reynir mjög mikið á þig andlega en það sem þú færð til baka er þess alveg virði.
Ég er búinn að vera að temja mér svona hugarfar í soldinn tíma núna og mér hefur aldrei liðið betur.
En skilyrðið er að þú verður innilega að trúa því að þú getir þetta. Enn og aftur byggist þetta samt á því að þú viljir breyta þér. Hugsið ykkur um þegar þið eruð með vinum ykkar. Hugsið líka, hvað vill ég fá útúr vinskapnum? ef þeir gera ekkert annað en að draga ykkur niður þá er kannski kominn tími til að sleppa þeim. Fynna sér nýja vini á sama stigi það er alveg ótrúlga erfitt og sárt, en það borgar sig. Eða þú getur líka verið meira með þeim vinum sem þú átt fyrir sem láta þér líða vel. Þú ert alltaf efst í röðinni yfir merkilega hluti í heimi. Verðið líka að hugsa það.

“I think I´m the first man to sit in the top of the world.”

Líða Vel

Látið ykkur líða vel, sýnið öðrum hvað ykkur líður vel og þeir munu elta.
Er talað um að Móses hafi rekið fólkið á undan sér, nei hann stóð alltaf fremstur og fólk elti.
Fólk þarf oft að getað séð að það er hægt að gera annað. Lífið er ekki eins og í bíómyndum, hlutirnir gerast bara ekki, þú þarft að gera þá.
Ekki bíða eftir því að eitthvað gerist. Hringið í vini ykkar sem þið hafið ekki talað við lengi, ekki vera hrædd við það. Getið þið búist við því að hann eða hún hringi í ykkur endilega fyrst ? sýnið fordæmi og aðrir munu reyna að . Ég er eiginlega alveg viss um það að þessi vinur eða vinkona eigi eftir að hringja í ykkur til baka.
Það þarf alltaf einhver að vera fyrstur til að gera hlutina. Sem dæmi það þorir enginn að hringja á lögguna og segja frá einhverjum dópsölum af því allir eru of hræddir, það er önnur ástæða fyrir því að ég geri það, en það er mjög stór partur af þeim sem vita um dealera sem þora ekki að hringja útaf því sem þeir gera. Hringið ekki segja neinum að þið hafið hringt, hringið með nafnleynd og þá eruð þið örugg. Ekki vera hrædd. Ekki vera hrædd við að prófa nýja hluti, þeir gætu kannski virkað betur en þig grunar.

“Never be afraid to try something new. Remember, amareurs built the ark professionals built the Titanic”



Ég vill benda á það að ég hef greinina í heild sinni inná http://kasmir.hugi.is/grogg

Ég vill fá að tjá mig meira persónulega hérna í endann.
“I´ve been trough hell and back” og það er satt, ég hef fengið að kynnast því hvernig helvíti er, en hugur min bjó það til. Hugur minn gat líka komið mér þaðan út, búið til útleið sem ég labbaði útum, þurfti bara að láta segja mér að hann gæti gert það.
Ég er búinn að tapa miklu á því að gera þetta ekki, hugsa jákvætt um hlutina. En ég er búinn að öðlast mikla reynslu og bnúinn að læra mikið. Ég vona að fólk taki engu illa sem ég er búinn að vera að segja hérna að ofan því þetta er sannleikurinn, allavega sannleikurinn minn. Gangi ykkur bara sem best með lífið (og að skilja þetta).

Ég vill taka það fram þrátt fyrir það að ég tali beint til ykkar sem lesa þetta í allri greinini þá vill ég taka það fram að þið ákveðið alveg hvernig áhrif hún hefur á ykkur. Hvað þið gerið með þessar upplýsingar.


Í trú um það besta Grogg