Þetta er óvenjulegt, ég veit það, en ég vildi prófa eitthvað nýtt. Þetta er um orðið vinir. Og ég veit að þetta er algjört bull en ég og vinkona mín nokkur vorum að rífast í dag og orðið kom svo sterklega til mín samt hvað vinir eru dásamlegir, hvað gerði maður án vina? Þá gæti maður ekki gert neitt! Maður gæti ekki farið til neins! Það væri hræðilegt að eiga enga vini. Ég á aðeins fáa alvöru vini sem ég get treyst því miður og er farin langt í burtu frá alvöru vinum mínum því að ég er nýflutt. En maður saknar vina sinna og maður saknar vina ef maður missir þá! Enginn vill lenda í því að missa vini sína!

En svo kemur það líka fyrir að sumir eiga bara enga vini, ýmindið ykkur hvað það hlýtur að vera hræðilegt að eiga enga vini! Ég veit til dæmis að vinir mínir munu alltaf standa með mér og það er líka þannig á móti en sumir, eins og einn strákur sem ég þekki, eiga bara enga vini og hafa aldrei átt! Ég gæti ekki ýmindað mér það! Vinir mínir og fjölskilda eru mér allt! En fjölskylda og vinir eru ekki það sama. Vinir á maður sem maður getur treyst og líka er það þannig með fjölskylduna en það er bara allt öðruvísi!

En svo eru líka sumir sem eiga platvini. Það hlýtur líka að “sökka”. Þá á maður bara vini til að eiga enga vini! Eins og ég sem er nýflutt í eitthvað nýtt hverfi er nýja stelpan í skólanum og ég er baktöluð og ég er þessi litla stelpa sem er svo klár og ég er ekkert það klár, bara vinn hratt í tímum en prófblöðin mín eru ömurleg en allir krakkarnir vita ekkert og ég á svo marga platvini en alvöru vinir mínir eru lengst inní ***********!

En eins og ég segi er ég bara að létta á hjartanu því ég get ekki byrgt þetta allt saman inni. En ég veit að sumir sem eru með mér í skóla núna eru hér á huga notendur en mér er alveg sama.

Like I Care!