Almenn Kurteisi ! Ég vil byrja á því að segja að ég vissi ekki alveg á hvaða áhugamál þetta myndi passa þannig að ég sendi þetta bara hingað. Fannst þetta passa best.

Jæja þannig er það að ég bý í raðhúsi sem er umkringt öðrum raðhúsum. Við erum í rauninni alveg í miðjunni í hverfinu. Síðan vinstra megin við húsið mitt er grasvöllur og körfuboltavöllur og síðan hjá þeim er annað hús. Hjónin sem eiga heima þarna eru hmm… hvað get ég sagt. Dálítið trufluð. Báðir strákarnir þeirra dálítið truflaðir(annar hálf-fatlaður og hinn bara psycho case!).

Ég veit nú ekki mikið meira um þau enn jæja ég ætla koma mér að efninu. Nú var maðurinn eitthvað að vinna í garðinum þarna. Hann mokar upp alveg helling af mold og í staðinn fyrir að setja það í hjólbörur og kannski fara með hana í móana sem eru þarna í kring þá ákveður hann að hendu þessu bara á gangstéttina!!! Síðan var ég að labba heim eina nóttina og sá ekkert fyrir framan mig og vissi því ekki að þessu þá. Búin að vera rigning um daginn og öll þessi mold bara orðin af drullu. Jæja ég renn í þessu verð brjálaður, allur blautur og drullugur!!!

Síðan var ég að fara aftur út næsta dag kannski um 4 leytið hva sé ég þar!? Þarna stóða maðurinn með vatnsslöngu og var að skola drulluna í burtu ég var nokkuð ánægður og staldraði ekkert lengur og hélt áfram heim félaga míns. Síðan kem ég aftur heim um nóttina og ég geng þarna, enginn drulla ég alsæll. Síðan er ég labba fyrir framan húsið mitt og BAM! Renn ég ekki bara á fullt af drullu aftur blautur og drullugur! Ég varð brjálaður.

Jæja ég komst að því hann hafði ekkert verið að skola drulluna heldur aðeins að láta hana renna niður og nú er allt út í drullu fyrir framan húsið mitt!!! Jæja ég fór þangað yfir í hádeginu og sagði honum hvað þetta væri mikil óvirðing og í rauninni lét ég hann bara heyra það ! Ég var brjálaður! Það eina sem hann sagði var; ég man þetta næst! Síðan henti hann mér af lóðinni.

Hvað var þetta !? Enginn heilbrigð mannvera gerir þetta! Ég veit ekkert hvað ég á að gera þetta er bara ógeðslegt hérna. Það eru kannski ekki margir sem vilja það að einhverjir táningar(ég er að verða 16) séu að messa yfir sér enn ef þeir eru að því þá ætti hann að vita að hann væri að gera eitthvað rangt. Jæja ég ætla biðja Óskar föður minn almáttugan um að ræða við hann þegar hann kemur heim úr vinnuni og ef það virkar ekki þá veit ég ekki hvað ég á að gera. Ætla maður taki þá ekki sjálfur vatnslöngu og sprauti þessu aftur yfir.

Hvað mynduð þið gera í mínum sporum? Ég held að það væri best að svara hörðu með hörðu!