Já Tilveran er ekki góð, ekki alltaf.

Núna ætla ég að tala um nauðganir, þar sem það er víst vondur partur af tilverunni ákvað ég að setja þetta í flokkinn Tilveran :)

Ég hef verið að velta því fyrir mér afhverju fólk nauðgar, og þá er ég sérstaklega að meina vini sem nauðga vinum sínum eða kunningjum.
Ég meina,að þó maður sé virkilega á þörfinni þá er það eitt það ógeðslegasta sem hægt er að gera er að nauðga!

Þetta er einhvað sem ætti ekki að vera til, því ekki nauðgar maður einhverri manneskju sem maður hatar……eða hvað??

Fyrst hugsaði ég þetta, að maður mundi ekki nauðga einhverjum sem maður hatar, en auðvitað veit ég ekkert um það.
Við vitum aldrei hvað þetta fólk hugsar……nema að það segji manni það sem ég tel ekki líklegt að margir geri :P
Og ekki held ég að margir mundu vilja heyra það.

En já, ef nauðgarinn mundi hugsa: Hvernig ætli mér mundi líða ef mér væri nauðgað þá held ég að honum væri sama og hann mundi nauðga þrátt fyrir það.

En afhverju er fólk svona vitlaust? Hvað fær fólk til að gera þennan viðbjóð?Er það gredda eða er það einhvað annað?
Þetta hef ég mikið verið að pæla í núna nýlega……

Og þetta var alveg rosalegt á Eldborg, þar var alveg rosalega mikið um nauðgun……Ég held það hafi verið 21 nauðgun yfir þá helgi!!

En mér finnst það verst þegar foreldrar nauðga börnunum sínum, þá langar mér nú mest til að tala þetta fólk og grýta það!
Því að þetta er fólk sem þú átt að geta treyst og maður býst alls ekki við því að vera nauðgað af foreldri sínu
Eða fólk sem nauðgar vinum og kunningjum!
Þetta er fólk sem þú kannski umgengst daglega, eða einu sinni í viku eða eitthvað!

Úff…..Þetta er rosalegur heimur, og alltof mikið um nauðganir á þessari plánetu

En hvað er ykkar álit á þessu málefni?
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"