Ég vil byrja á því að koma því fram að þessi grein er ekki eftir mig en vinur minn skrifaði hana og gaf mér leyfi til að setja hana hingað.

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki
yfir að kaupa fyrr. Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði
ég að kvarta í hljóði “Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði”.
Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin. Allavegana, ég
kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá
tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt. Hann strauk hárið á dúkkuni og
virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum “amma, ertu
viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?” Gamla konan
svaraði “þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín” Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór
fljótlega. Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. “Þetta er dúkkan sem systir
mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana. Ég
sagði honum að kannski ætti jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur ”Nei
jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti
gefið henni hana þegar hún fer þangað“. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta. ”Systir mín er
farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka
að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti
farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana“.
Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði” Ég sagði pabba að segja mömmu að
fara ekki alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað
til að ég kæmi heim úr búðinni“ Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlæjandi. ”Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei“ ”Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni“. Svo leit

hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög
hljóðlátur. Ég teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn ”en ef við
athugum aftur í vasann til að tékka hvort að þú eigir nógan pening?“ Allt í lagi sagði strákurinn ”ég vona að ég eigi
nóg“ Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur
peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur. Litli strákurinn sagði ”Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig ogsagði “ Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna
handa systur minni. Hann heyrði til mín” “Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta
rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of
mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka.
Sko mamma elskar hvíta rós”. Nokkrum mínútum seinna kom
gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari, ég gat ekki hætt að hugsa um litla
strákinn. Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2
dögum síðan “maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó
samstundis en mamman var í dái” Fjölskyldan varð að
ákveða hvort að það ætti að setja hana í öndunarvél eða
ekki, af því að hún unga konan myndi ekki vakna úr
dáinu. Var þetta fjölskylda litla stráksins? Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las égí blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í
blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og og óskað sér í seinasta
skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í kjól,
haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er
enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér.Og í
einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.