Hef ekki hugmynd um hvar ég átti að setja þessa grein þannig að ég setti hana bara á “Tilveran”…

Mér finnst alveg virkilega sorglegt hvernig frægðarbransinn er í dag. T.d. Christina Aguilera, hún hefur frábæra rödd og syngur mjög vel, þess vegna finnst mér svo mikil synd að hún sé að “selja” sig sem einhverja hóru. Að koma rosalega fáklædd fram í myndböndum og á myndum bara almennt til að fá meiri athygli finnst mér asnaleg og drusluleg markaðsetning.


En svona er heimurinn í dag. Það er ekki spurning um hæfileika heldur útlit í mörgum tilfellum, þá séstaklega í poppbransanum. En það kemur upp fólk eins og Christina sem eru góðir tónlistarmenn og hafa virkilega hæfileika en selja líkama sinn til að fá meiri athygli sem er ekki alveg að gera sig inní hausnum á mér.


Þetta er náttúrulega ekki bara Christina Aguilera heldur bara meirihluti söngkvenna í dag. Þetta eru stelpur sem eru að reyna að koma sér á framfæri. Þær reyna margar hverjar að komast áfram með líkamanum.
Tökum sem dæmi t.A.T.u. Þær segjast vera lesbíur. Ég er nú ekki alveg að taka það mjög trúlega. Haldið þið að þær hefðu fengið svona mikla athygli og vinsældir hefðu þær ekki sagst vera lesbíur? Ég held ekki. Þær koma náttúrulega frá Rússlandi og það er soddan harðsjóraland. Þannig að kannski fengu þær þessu ekki ráðið heldur var þeim sagt að segjast vera lessur en hver veit…?
Svo er náttúrulega fólk sem fílar í botn að stelpurnar séu svona fáklæddar og druslulegar, samt eru allsekki allir sem eru að fíla það eithvað eins og t.d. ég.


Britney Spears er nú eingin hörkusöngkona að mínu mati, samt er hún ein frægasta poppsönkona í heimi, afhverju er það? haldiði að einhver mundi hlusta á hana ef hún væri dökkhærð þybbin með stóran rass? Þetta eru líka fjölmiðlar auðvita, þeir vilja hafa sönkonurnar ljóshærðar mjög grannar og með stór brjóst annars eru þær bara ömurlegar!
Ég fíla Shakiru alveg í botn og hún er góð söngkona og flott að mínu mati. Um daginn sá ég myndbandið hennar Whenever, Wherever á popp tíví með vinkonu minni, þessi vinkona mín sagði að hún væri svo feit með stórar mjaðmir og fílaði hana þessvegna ekki! Shakira feit!?! Ég lét náttúrulega vaða yfir hana hvað það væri mikið kjaftæði að hugsa þannig.


Hvað finnst ykkur..??
./hundar