Í þessu lífi er ég kona. Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.

Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala
Þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði
Ég gæti lifað með því

Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líka lifað með því

Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt
Ég gæti sko alveg lifað með því

Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína
Og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka
Ég gæti lifað með þessu

Ef þú ert björn þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEĐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn
“Against boredom, the gods themselves struggle in vain.” — Nietzsche