Sælir notendur, Kubbur og Rosebud erum orðnir stjórnendur á þessu áhugamáli, Við höfum sett okkur það takmark að vera duglegir að fara yfir og samþykkja/hafna greinum og myndum ásamt því að fara vel yfir korkana og svör við greinum og myndum, í gegnum tíðina hefur verið mikið um kjaft og rifrildi inná huga og oftar en ekki er farið langt út fyrir málefnið á óviðeigandi stöðum, við tökum á því eins og sönnum stjórnendum ber að gera og vona að þið virðið það

Ef ykkur langar til að einhverju verði breytt, lagað eða annað varðandi uppsetningu áhugamáls ásamt fleiru verði breytt þá má hafa samband við okkur og má þá athuga málið

heil og sæl
stjórnandi frá fornöld kubbur#2950