Matt Stone og Trey Parker sögðu í beinni útsendingu að 5.sería byrjar í Júní! Þeir sögðu líka að engar áætlanir væru að gera nýja bíómynd því þeir óttuðust það að ef hún væri ekki eins góð og hin, þá myndi fólk sjá eftir að hafa líkað við hina(ég veit að þetta er ekki vel orðað en þeir orðuðu þetta svona). Þeir ætla að enda South Park með því að drepa allar persónurnar smá saman og enda þannig þáttinn. Þið getið verið óhrædd í bili því þeir sögðu líka að þeir ætluðu að stoppa þegar þættirnir væru orðnir 120 eða fleiri þannig að þættirnir eiga eftir að halda áfram í alla vega 2 ár í viðbót.