Frá næsta miðvikudag mun Comedy Central sýna 6 nýja þætti í 6. seríu.

Næsti þáttur fjallar um þegar strákarnir byggja stiga til himna í von um að geta fengið Kenny aftur til jarðar. Saddam Hussein er fastur í “hræðilegu” paradísinni og langar að komast þaðan burt. Við sjáum til hvort það takist.

Í einhverjum öðrum þætti kemst Stan að því að foreldrar hans notuðu tímaflutning til þess að gera Stan að betri strák. Stan verður mjög reiður og leitar hjálpar Cartmans til að ná hefnd(minni bara á þátt 5x01: Scott Tenorman).

Einhvern tímann síðar munu strákarnir leita í goðsagnakennda ævintýraferð. Hvattir áfram með anda Gandalfs og Fróða, tekur Cartman leiðtogahlutverkið í ferðinni til að skila eintakinu af Lord of the Rings myndinni tilbaka í myndbandaleiguna.