Ég skrifa þessa grein aðallega til þess að fá nýjar greinar hingað inn. ÞEtta áhugamál mun aldrei deyja út af því að South Park RÚLLAR!!!! En það er eitt á þessu áhugamáli sem pirrar mig, allir vilja segja frá uppáhalds þættinum sínum í smáatriðum! Það er nú óðarfi. En ég ætlaði að segja ykkur frá mögnuðu South Park púsli sem ég og fjölskyldan erum að setja saman í sumarbústaðnum okkar. Það er 1000 púsl og mjög erfitt. Á myndini eru nánast ALLAR persónurnar úr þáttunum, (fyrir utan gestahlutverk)Cartman, Kenny, Stan og Kyle stærstir. Sá hluti púslins er ca.700-750 bitar. Afgangurinn er bara blár himinn! Við erum búin með allar persónurnar og það tók okkur öll heilan dag. Ef ykkur vantar góð og erfið púsl, leitið að South Park púslum.
Maria KR. ;)
- MariaKr.