Hæ hæ ég er að leita að teiknimynd sem að ég sá þegar að ég var lítil. Þetta er frekar gömul teiknimynd og ef að einhver þekkir þessa mynd þá væri ég mjög þakklát ef að sá hinn sami væri til í að segja mér hvað hún heitir. Má vera á ensku.
Þetta er það sem að ég man úr myndinni:
Vörubíll keyrði útaf í miðjum skóginum og þá slapp eiturgas í náttúruna lítil greifingjastelpa varð fyrir eitrun og nú fara vinir hennar að leita að jurt sem getur læknað hana. Vinir hennar eru molvarpa með gleraugu(held ég) og mús og svo var einn í viðbót en ég man ekki hvað hann var. Þegar að þau finna jurtina þá er hún á einhverri klettasyllu og þau byggja einhverskonar flugtæku til að reyna að ná jurtinni.