Núna vill svo til að ég einfaldlega VERÐ að sjá Lion King myndina, er að nauðga lögunum úr henni á youtube, og elska þau, en man bara eiginlega ekkert eftir myndinni sjálfri, enda mjög langt síðan ég sá hana seinast. Ég á hana ekki, hvorki á vhs eða dvd, svo ég þarf að kaupa mér hana…

Ég fór í Hagkaup, Skífuna og BT í Kringlunni í dag, fann hana ekki. Fann nokkrar aðrar svona klassískar frá Disney, sem og einhver framhöld af Loin King, en ekki sjálfa myndina sem ég var að leita að.
Svo ég spyr: Hvar er hægt að kaupa Lion King á dvd?

Svar væri vel þegið ^^