Sæl öll sömul.

Málið er að ég lenti í rifrildi. Það er svosum ekkert merkilegt, nema það að það snérist um andrésínu! Til að gera langa sögu stutta þá snérist það um hvort Andrésína ætti/hefði einhverntíman klæðst regnkápu. Mér finnst það að sjálfsögðu.. ég meina, hvernig getur Andrésína Önd gengið í gegnum lífið án þess að eiga regnkápu?

Svo mig vantar ÞÍNA hjálp við að sanna það fyrir vinkonu minni að andrésína eigi bara víst regnkápu. Helst þá með því að ef þið sjáið mynd af henni í einhverju andrésblaðinu þá að láta mig vita í hvaða blaði, eða jafnvel skanna það inn fyrir mig :D

Vona að þetta sé ekki og langt.
- Jóakim
Þú getur sjálfum þér kennt um allar stafsetningarvillur!