Ég varð óskaplega glöð þegar ég las eina fréttina á mbl.is áðan. Það á núna loksins að fara að gera kvikmyndir í fullri lengd um strumpana. Þessu hef ég beðið eftir síðan ég var svona 6 ára :)

Stefnt er á að gera 3 myndir og að sú fyrsta komi út árið 2008 en þá verða 50 ár liðin frá því að strumparnir komu fyrst fram á sjónarsviðið. Ekkert hefur heyrst frá strumpunum síðan árið 1992.

Ég geri ráð fyrir að þetta verði barnamyndir en ég kem nú samt til með að sjá þær þar sem ég hélt rosalega mikið upp á strumpana í æsku. Vonandi mun æska heimsins í dag kunna jafn vel að meta strumpana og við sem horfðum á þá hérna í den.

Karat.