Heyrst hefir að Fox séu svo ánægðir með góða sölu á Futurama DVD að þeir hafi hug á að endurvekja Futurama. Þó ekki sem þætti heldur sem kvikmyndir sem fara beint á DVD. Upplýsingar um þetta eru þó ekki miklar og ekkert er öruggt. En þetta er í fyrsta skipti síðan Futurama var tekið af framleiðsluskrá sem eitthvað jákvætt kemur frá yfirmönnum Fox. Við skulum bara vona það besta og fylgjast spennt með fréttunum.
Þetta er haft af síðunni: http://www.gotfuturama.com/