Ég er nýlega búinn að eignast fullt af The Family Guy þáttum og ég fæ gjörsamlega ekki nóg af honum. Þetta eru algjörir snilldar þættir og svo verulega steiktir. Það kemur alltaf svona inn á milli eitthvað verulega steikt eins og í einum þætti þegar öllum brá einhvað þá var líka sýndur hneikslaður kolkrabbi sem sat við eldhúsborðið, algjör SNILLD. Og stanslaust verið að gera grín af einhverju frægu fólki og maður getur hlegið endarlaust af sömu atriðunum. En samt er þetta soldið líkt The Simpsons, margir örugglega ósammála en ég sé margt sameiginlegt þarna á milli en ég er samt ekki að segja að það sé einhvað slæmt, þetta eru báðir frábærir þættir.