Jæja krakkar, Nú vantar mig nafn á þætti sem var alltaf sýndur eitt sinn á stöð 2 hérna í “gamladaga”.

Þátturinn er um unga krakka, eina stelpu og einn strák ásamt vinum.
Þau eiga hund sem er alltaf þarna hjá þeim, og eiga þau heima í London ef ég man rétt og sofa í litlu skipi þarna í bryggjunni.

Þau þurfa að veiða rottur til að geta selt og fengið sér einhvað að æti.
og ef ég man rétt þá var strákurinn (aðal persónan) sköttlóttur, alltaf með einhvern hatt og var mikið í því að slást… en stelpan var með rautt hár og var svona meira svona “kjafturinn” :D.

Man voða litið eftir rest… endilega segið nafnið á þessum þáttum :D

Bara snilldar þættir =)

Bambi