Ég leit aðeins á síðu hinar ágætu stöðvar Fox í Bandaríkjunum, þar sá ég að Family Guy var kominn meðal þátta á Fox. Ég ákvað að líta aðeins á síðu Family Guy, en þar er ýmislegt áhugavert m.a. myndskeið sem sýnir Seth MacFarlane(höfundur Family Guy) er að taka upp hljóðklippu sem persónan Stewie. Þar sá eitt annað sem greip áhuga minn, það var önnur vefslóð á annan þátt, sem heitir American Dad, og er eftir sama lið og gerir Family Guy. Ég mæli með því að þið skoðið þetta betur á http://www.fox.com/familyguy og http://www.fox.com/americandad .

Kv. OrkaX