Á að koma út þann 15 Júní. Kemur að öllum líkindum bara út fyrir “Heimssvæði 1” (Region 1 - USA & Canada). Þetta eru 4 diskar fullir af fjöri. Þarna má finna gullmola eins og : Kamp Krusty, Mr. Plow, Marge vs. the Monorail og fleiri snilldarþætti. Svekkur ef þetta kemur ekki til evrópu. En góður plús er samt að þetta er eitthvað að lækka í verði (á að kosta eitthvað um 33 $ á AMAZON.COM) og vonumst við til þess að þetta verði ekki mikið hærra hjá þeim aðilum sem að kjósa að flytja þetta inn til landsins og selja.

Það verður gaman að skoða aukaefnið á þessum diskum og vonandi verður þar að finna eitthvað sem aldrei hefur sést áður.