Þátturinn Lisas Date with Density er með fullt af atriðum þar sem Milhouse fer á kostum eins og:

Þegar allir í tónlistartíma fatta að Lisa er skotin í Nelson þá byrja allir að segja “Lisa loves Nelson”. Þá kemur Milhouse “No she doesn't”. Þá byrja allir “Milhouse loves Lisa” en þá segir Jeanie “No he doesn't”. Þá ætluðu allir að byrja að segja “Jeanie loves Milhouse” en þá greip kennarinn framm í og öskraði “Nobody likes Milhouse”.

Milhouse er að tala við Lisu varðandi Nelson en þá segir Lisa að Milhouse sé eins og stór systir. Síðar í því atriði segir Milhouse svo “What are big sisters for”

Að lokum er besta atriðið þegar Milhouse lætur miða ganga til Nelson frá Lisu þar sem stendur á “Guess who likes you”. Nelson lítur til baka og þá er Milhouse að veifa til hans. Þá skiptist yfir þar sem Milhouse er á sjúkrabörum eftir að Nelson hafði lamið hann í klessu.

Endilega tjekkið á þessum þætti.
He may be a son of a bitch, but he is our son of a bitch.