Ég veit að allir sem stunda South Park vita um/hafa séð bæði Baseketball og Orgazmo. En fyrir þá sem hafa gaman af öðru því sem Trey Parker (og Matt Stone líka) hefur gert vil ég benda á fyrstu mynd Parkers í fullri lengd. Hún heitir Alferd Packer: The Musical (aka Cannibal: The Musical) og er að mínu mati besta mynd Parkers. Hún er gerð fyrir mjög lítið budget og skaðar það myndina ekki neitt að mínu mati. Svo er hún söngleikur troðfull af lögum (ásamt dansatriðum!) sem fá aðdáendur slíkra til að hvítna af reiði en SP aðdáendur til að rifna úr hlátri.