Það er búið að framleiða seríu 5 og hún er í sýningum í BNA nú. Líklega verður ekki hægt að klára alla þættina sem búið er að framleiða þennan veturinn og því er líklegt að sería 6 verði sýnd næsta vetur. En svo er ævintýrinu lokið því FOX hefur ekki endurnýjað samninginn um framleiðslu þáttanna og allt starfsfólk Futurama löngu komið í ný störf. En kvíðið ekki vinir Matt Groenings því sagt er að hann hafi nýja seríu í planleggingum en ekkert er meira að frétta af henni en það. Einnig eru sögusagnir um að Futurama kvikmynd komi til greina. Og framleiðsla á Futurama tölvuleik er hafin og er áætlað að hann komi út á þessu ári.
Þess má geta að þættirnir sem eru í 5. (og 6. seríu) eru í raun afgangs þættir úr 4. seríu, þeas. 4. 5. (og 6.) seríur voru framleiddar í einu holli.<br><br>
Búið í bili
“Thrumufleygurinn”