Margir hafa verið að vonast eftir að Matt Groening geri eins og Mike Judge (gæjinn sem gerði Beavis and Butthead) og búi til Simpsons Bíómynd. En því miður kemur fram í viðtali við Matt að vegna þess hve mikil vinna fór í hvern tuttugu mínútna þátt þá sé mjög ólíklegt að hann komi til með að gera heila níutíu mínútna bíómynd.