Sideshow Bob tekinn úr þáttunum. (þáttur 01.02) Hæhæ,
Þetta gerðist í þættinum í kvöld, Sideshow Bob heyrir Krusty tala um í sjónvarpinu að hann hafi tekið yfir alla gömlu þættina -þ.e; þá sem Bob var í-, og Bob segir að Krusty hafi þurrkað út fortíð hans, og hann muni þurrka út framtíð hans. Krusty verður afskaplega pirraður á starfsfólki stöðvarinnar, og segir að næsti þáttur verði sá síðasti. Bob fær sér vinnu í skólanum, þar sem hann tilkynnir aðburði og leiðbeiningar í hljóðnema um skólann, og hann segir Bart að koma, ófylgt í kofa á skólalóðinni. Þar bindur hann Bart við stól og dáleiðir hann, til að drepa Krusty í lokaþættinum sínum…
Allt gengur samkvæmt áætlun og Bart gerir eins og honum er sagt, en þegar Bart leggur að stað til að faðma Krusty (hann var með sprengjur á sér sem hefðu sprengt þá báða), þá byrjar Krusty að tala um Bob í þættinum, biður hann afsökunar, og Bob fyrirgefur honum. Nú var málið að hindra hinn dáleidda Bart, sem að api Krusty gerir. Krusty, Bart og Bob sættast, og í endann á þættinum eru þeir, restinn af Simpson-fjölskyldunni og Sideshow-Mel (núverandi aðstoðamaður Krusty) á veitingastað, en þar kemur í ljós að Bob var dauðadæmdur fyrir að reyna að drepa Krusty, og þátturinn endar á því að lögreglan er að fara að taka hann af lífi.

Sideshow-Bob var aðstoðamaður Krusty í fyrstu þáttunum, en er svo tekinn í burtu, fyrir að reyna að koma sök á Krusty fyrir glæp. Ég held að Bart (og örugglega Lisa) hafi bjargað Krusty, og Bart verður erkióvinur Bobs. Bob gerir margar tilraunir til að drepa bæði Krusty og Bart; hann rænir m.a gereyðingarvopni og reynir að drepa Selmu, systir Marge,(sem er reyndar ekki tilraun til að drepa Bart eða Krusty). Þetta gerðist víst sex sinnum og alltaf mistókst Bob. Kelsey Grammer talar fyrir Sideshow-Bob, en hann leikur Frasier í samnefndum þáttum.
Mér persónulega finnst ekki mjög gott að þeir séu að taka Bob út (og kannski jafnvel Krusty), því að nú finnst mér kannski soldið að Simpson sé að enda, fyrst þeir eru að taka persónur út. En mér fannst ágætt að láta Bob, Krusty og Bart sættast áður en hann var tekinn :).

Jæja, vona að ykkur hafi líkað þetta :).
—————————–