The Simpsons Simpson-fjölskyldan (enska The Simpsons) eru bandarískir teiknimyndaþættir eftir Matt Groening sem hófu feril sinn í stuttum teiknisyrpum í Tracy Ullman-þáttunum 1987 og urðu að 30 mínútna löngum þáttum sem voru sýndir á Fox í Bandaríkjunum 1989. Þættirnir gera oft grín að bandarísku þjóðinni, sjálfum sér eða öðrum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Fjölskyldan samanstendur af bráða fjölskylduföðurnum Homer J. Simpson, skynsömu móðurinni Marjorie (Marge) Simpson, prakkaranum Bartholomew (Bart) J. Simpson, hinni gáfuðu og feimnu Lisu Simpson og kornabarninu Margret (Maggie) Simpson. Fjölskyldan býr að Evergreen Terrace 742 í Springfield.


UPPHAFIÐ.

Matt Groening hafði áður gert teiknimyndasögur sem hétu Life in Hell og vöktu þær athygli James L. Brooks sem vildi gera þær að teiknimyndasyrpum í þætti Tracy Ullman. Groening vissi ekki hvort að þættirnir um Life in Hell yrðu vinsælir svo að á nokkrum mínútum teiknaði hann truflaða fjölskyldu og hafði ekki tíma til þess að finna upp almennileg nöfn svo að hann nefndi persónurnar eftir fjölskyldu sinni: Homer, Margret, Lisa og Maggie en ákvað að nú væri þetta of augljós nöfn svo að hann nefndi strákinn Bart (stafarugl af enska orðinu brat sem þýðir óþekktarormur). Fyrsti þátturinn fór í loftið 1987. Teiknisyrpurnar nutu mikilla vinsælda og 1989 komu Matt Groening, James L. Brooks og Sam Simon saman og ákváðu að gera 30 mínútna langa þætti um Simpson-fjölskylduna. FOX samdi um 13 þætti og átti að sýna fyrsta þáttinn (Some Enchanted Evening) í október en þátturinn var svo lélegur að þeir frestuðu frumsýningu hans og létu David Silverman, einn af teiknurunum, hreingera þáttinn. Þeir byrjuðu á Simpsons Roasting on an Open Fire fyrst í desember 1989 og sýndu Some Enchanted Evening seinast um vorið 1990.

Aðalleikarar.

Aðalraddleikarar Simpsons eru sex:

Dan Castellaneta (Homer, Grandpa, Krusty, Barney, Groundskeeper Willie, Kodos, Sideshow Mel, Gil, lögfræðingur Burns, Squeaky-Voiced Teen)
Julie Kavner (Marge, Patty og Selma);
Nancy Cartwright (Bart, Nelson, Kearney, Ralph, Todd);
Yeardly Smith (Lisa);
Hank Azeria (Chief Wiggum, Moe, Apu, Carl, Dr. Nick Riviera) og
Harry Shearer (Ned Flanders, séra Lovejoy, Mr. Burns, Mr. Smithers, Kent Brockman, Dr. Hibbert, Skinner, Lenny, Kang, Marvin Monroe, Otto).
Dan og Julie unnu við Tracy Ullman þættina og Matt var neyddur að nota þau. Síðan voru Nancy Cartwright og Yeardly Smith valdar til verksins. Harry Shearer var ekki ráðinn fyrr en í fyrstu þáttaröðinni. Hank var gestaleikari þangað til í 3. þáttaröð.


[breyta] Aukaleikarar
Aukaleikarar eru líka í Simpsons og tala oft fyrir nokkrar persónur. Helstu eru:

Pamela Hayden (Milhouse, Jimbo, Rod);
Tress MacNeill (Agnes Skinner, Dolph);
Maggie Rosswell (Helen Lovejoy, Maude Flanders (1990-99));
Marcia Wallace (Mrs. Krabapple);
Russi Taylor (Martin Prince);
Karl Wiedergott;
Frank Welker (Santa´s little Helper (hundurinn)
Doris Grau (Lunchlady Doris (1990-96)).
Síðan koma oft fram frægir gestaleikarar og listinn er yfir hundrað en helstu eru: Joe Montagna (Fat Tony); Albert Brooks (ýmislegir); Kelsey Grammer (Sideshow Bob); Phil Hartman (Lionel Hutz og Troy McClure (1990-98)) og Jon Lovitz (ýmislegir en oftast Artie Ziff

Handritsskrif.

Það er yfir 20 rithöfundar sem vinna við Simpsons. Hver og einn rithöfundur sendir oftast inn handrit eða hugmynd að þætti. Handritið er síðan endurritað af öllum ef þess þarf, stundum bætast við bráðfyndnir brandarar sem ekki voru í upphaflega handritinu. Stundum stingur einhver upp á sögu en er ekki við til að skrifa handritið, þannig að annar rithöfundur fær söguna. Kímnin er aðallega svört og oft eru daglegir hlutir ýktir og þeir skopstæla oft fréttir, sjónvarpsþætti, kvikmyndir eða stjórnmál. Helstu rithöfundarnir eru John Swartzwelder, Ian Maxton-Graham, Ron Hauge, George Meyer og Jon Vitti

Teiknimyndagerð.

Simpson-fjölskyldan var lengi vel teiknuð og hreyfð á gamla mátann (1989-2002) - tækni sem kallast Cel Animation. Fyrst eru samin handrit og þau endurskrifuð oft. Síðan gerir teiknimyndaleikstjórinn myndasögu út frá handritunum. Síðan talsetja leikararnir og leikstjórinn og teiknararnir hlusta á spólu með hljóðinu og búa til Animatic sem grófhreyfð teiknimynd. Síðan senda þeir þennan animatic ásamt leiðbeiningum til Suður-Kóreu þar sem þættirnir eru fullkláraðir á glærur sem kallast cel. Og oftast eru 2-3 cel fyrir einn ramma (persóna, persóna 2 og bakgrunnur). Síðan taka þeir þetta upp á upptökuvél og koma hreyfingunum saman. Síðan er þetta sent til Bandaríkjanna og þeir fínnpússa þáttinn, klára að stilla hljóðbrellurnar og raddsetninguna og koma honum í loftið. Þetta ferli tekur 9 mánuði. 2002 byrjuðu þeir að lita þættina í tölvu en nú er þetta eingöngu gert í tölvu því að enginn kann þessa tækni lengur. Helstu leikstjórarnir eru David Silverman, Mark Kirkland, Jim Reardon, Rich Moore, Wes Archer og Nancy Kruse.

Takk fyrir mig.



PS: sumt er copyiað en ekki allt.