(Ef þú hefur ekki séð síðasta þátt með the simpson ekki lesa þetta (Spoiler)) Þátturinn sem var með Simpson núna síðastliðinn föstudag var nokkuð nettur að mínu mati! :) Ég gat mikið hlegið af honum. En það er eitt sem ég tók eftir og hef tekið eftir í síðustu þáttum að Hómer karlinn, er orðinn frekar klikkaður! Í byrjun þáttarins var hann í hnífaleik og stakk í puttana á sér í hvert einasta skipti, svo kemur Marge og segir “No knife games at the dinner table” og Hómer á eftir “You and your presious table”. Seinna í þættinum sígur hann allt úr einhverri köku! Mér finnst eins og hann sé orðinn nýr skemmtilegur karakter! Það er mjög gaman að honum núna… hann er svo kærulaus og heimskur :D Ég mæli mjög með að þið fylgist með því hvernig hann hegðar sér. Allavega í þessum nýju þáttum.

Takk fyrir
Ray Franco