Mér finnst ekki vera mjög mikið af South Park hérna á áhugmálinu þannig að mér datt í hug að koma með eina South Park Trivia, ég fann þessa á netinu, þetta eru að vísu spurningar úr fyrstu seríunum, þessum gömlu góðu þess vegna býst ég við að þetta verði ennþá erfiðara. Sumt af þessu er mjög erfitt enn annað er alveg virkilega létt. Ég ætla að hafa stig fyrir hverja spurningu og síðan getið þið reiknað út hve mörg þið verðið með, ég mun birta svörin eftir 3-4 daga. Gangi ykkur vel og hafið gaman af þessu!

1.Hver var faðir Eric Cartmans?(létt)1 stig

2.Hvað heitir frændi Cartmans sem er inn í fangelsi?(erfitt)3 stig

3.Hvað heitir systir Stans?(létt)1 stig

4.Hvað bjargaði lífi Mr.Hankey's?(miðlungs)2 stig

5.Hvað hét forfalla kennarinn sem kom í stað Mr.Garrisons og hvernig fór fyrir henni?(miðlungs)2 stig

6.Hvað hét konan sem Chef næstum því giftist og hvað var hún?(erfitt)3 stig

7.Hvað hét fyrsti þátturinn?(létt)1 stig

8.Hvaða þátt voru Ned og Jimbo með?(erfitt)3 stig

9.Hvað var svona ægilegt við “the mexican staring frog of Southern Sri Lanka”?(miðlungs)2 stig

10.Hvað heitir sjónvarpsþátturinn sem Jesús er með?(létt)1 stig

11.Hvað heitir rútubílstjórinn?(miðlungs)2 stig

12.Hvað heitir illi guðinn sem kom Móse nætum því fyrir kattarnef?(miðlungs)2 stig

13.Hvað heita gyðingabúðirnar sem Broslovski-fjölskyldan(fjölskylda Kyles) sækir á hverju ári?(miðlungs)2 stig

14.Hvað heita foreldrar strákana?(erfitt)3 stig

15.Hvað heitir vinstri hönd(brúðan) Mr.Garrisons?(mjög létt)1 stig

16.Af hverju var Cartman sendur í unglingafangelsi?(miðlungs)2 stig

17.Hver var “The Chicken lover”?(miðlungs)2 stig

18.Hvað heitir stjórnandi stjörnuversins og hver var áætlun hans?(erfitt)3 stig

19.Hvað heitir lögreglustjórinn í South Park?(létt)1 stig

20.Nefnið alla þættina sem Kenny hefur ekki dáið í.(þetta er fyrir mig, mig langar að vita hvaða þættir það eru)

Ég veit að þetta er ekki besta trivian enn samt trivia, síðan langar mig líka að endurvekja South Park hérna á Teiknimyndir.
Ég vona að ykkur hafi gengið vel og hafið skemmt ykkur í leit að svörunum, og eins og ég sagði þá birti ég svörin eftir um það bil 3-4 daga

Kveðja
boggi35