Jólakveðja Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að tala fyrir hönd Ragnars, Fragmans og Allesklars þegar ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Í enda október sameinuðust South-Park og Simpsons, og þannig urðum við til. Síðan þá hefur þetta áhugamál lifað góðu lífi, og þökkum við ykkur það.

Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar, en munið samt að koma reglulega inn á huga. Kannski 5-6 klst. á dag, jafnvel meira.
-
Ég vill persónulega þakka ykkur öllum, vinum sem óvinum, fátækum sem ríkum, fyrir umræður hér árið 2003. Ég þakka fyrir mig, alla athyglina(?) sem ég hef fengið og leiðindin. Vonandi verður næsta ár skemmtilegra í þeim efnum.
-
Gleðileg jól,

Allesklar,
Fragman,
HrannarM,
RaggiS