Invader Zim Vegna of lítillar umræðu um þessa frábæru þætti hef ég ákveðið að skrifa smá grein um þá.
Þættirnir eru um Invader að nafni Zim sem er sendur af “The Allmighty Tallest” til jarðar í þeim tilgangi að gera útaf við allar mannverur. Upprunalega átti hann ekki að fara neitt en þegar hann ræðst inná samkomuna þar sem Invaderarnir eru sendir til plánetnana sinn ákveða þeir að senda hann á einhverja leyniplánetu sem enginn veit hvar er, hann endar fyrir tilviljun á jörðinni. Með honum er vélmenni að nafni GIR sem varð til þegar invaderarnir áttu að fá aðstoðarvélmenni að nafni SIR. Þá tóku “The Allmighty Tallest” allskonar brotajárn og drasl sem þeir náðu að setja saman útkoman var GIR. Þegar þeir koma til jarðar þá er kominn tími til að velja sér dulargervi, Zim fékk sér svart hár og blá augu en GIR hundabúning. Þeir byggðu sér hús og Zim byrjaði í grunnskóla.

Í skólanum var aðeins einn nemandi sem tók eftir því að hann var geimvera, en vegna brjálaðra kenninga hans þá trúði enginn þessum stórhausaöa dreng, sem gengur undir nafninu Dib Membrane. Dib á systir sem hann dregur með sér útum allt en eina sem hún hefur áhuga á er tölvuleikurinn sinn. Minnir nokkuð á Mansonista með fölu húðina, dökku fötin og dökkfjólubláa hárið. En nóg um það. Hér fyrir neðan er aðeins ítarlegra um persónurnar.

Zim:
Zim er grænn að húðlit, dulargervið hans er einungis svart hár og blá augu. Er búinn að fjalla nóg um hann hér fyrir ofan.

GIR:
Vélmennið GIR er án efa uppáhalds persónan mín í þessum þáttum. Þegar hann er ekki í græna hundabúningnum sínum er hann bara með járnáklæði og græn augu, á til með að koma með steiktar setningar.

Dib:
Stórhausaði drengurinn að nafni Dib ofsækir Zim og er alltaf að reyna að sanna að hann sé geimvera. Á systir sem heitir Gaz og hatar hann.

Gaz:
Hún Gaz talar lítið, hatar Dib og kenningar hann um dularfulla hluti eins og geimverur og þannig lagað.

Professor Membrane:
Faðir Dib og Gaz Membrane. Er alltaf í hvítum slopp með kraga sem nær alveg uppað nefi. Sést aldrei almennilega framan í hann.

Ms. Bitters:
Kennarinn hans Zim. Hefur enga fætur og svífur bara, það skríða alltaf köngulær á andlitinu á henni. Átti æskudrauma að verða geimfari.

“The Allmighty Tallest”:
Ég er ekki klár hvað þeir heita, en þeir gera þættina frábæra. Eru alltaf að éta eitthvað og gera sífellt grín að Zim.

Ég vona að þetta hafi frætt ykkur eitthvað og ég hafi ekki gleymt neinum mikilvægum,
AlmarD.