Jæja ég ætla að skrifa um minn uppáhald Simpsons þættinum mínum. Og þetta er svona þáttur þar sem er bara svona fáranlegur Húmor sem ég fýla geggjað mikið hann heitir “Simpsons Goes To Africa” ég ætla að segja hann í smáatriðum það eru nefnilega aðalega aulahúmorsbrandararnir sem eru inni á milli sem fá mig til að hlæja.

Það er þannig að Lisa, Bart & Homer eru að versla og náttla er Homer nautheimskur og veit ekkert í sinn haus og þau plata hann endalaust til að kaupa tonn af nammi. Meðan Marge & Maggie eru á slysó því Maggie Gleypti “Time” tímarit. Síðan kemur að því að það er verið að setja í poka og það eru svona það sem var þýtt þarna Pokadýr (Drengirnir sem setja í poka fyrir fólkið). Fólk lýtur á þau sem bara einhverja þræla sem hafa engar tilfinningar. Og Homer vill láta setja í pokan eftir lit og eftir hvaða tíma maturinn var fundinn upp, síðan skiptir hann alltaf um skoðanir. Og hann potar í þá endalaust. Síðan fara drengirnir í verkfall. Fólkið er látið vera svo latt að það verður hungursneið í Springfield því enginn getur sett í poka fyrir þau. Síðan sýna þeir hjá Simpsons þar sem þau leyta að mat þar finnur hundurinn einhverja lykt og það vísar þeim á eldgamla nestisboxið hans Homers og finnur Dýrakex frá 7 Áratugnum og byrjar að éta það. Þá finna þau Gullgírafa sem var eldgamall leikur þannig hann sem fær Gírafan fær ferð til Afríku og þau fara þangað eftir Homer hefur verið með miklar deilur við Fyrirtækið sem er núna hætt að framleiða dýrakex það gerir núna “Jólaseríur & Flugnaeytur”. Þau fara til Afríku og þar er leiðsögumaður sem er snilld held að röddin sem leikur Apu leiki fyrir hann. Og þau fara í ferð til afríku þar sem allt er í steypu. Nashyrningar fæðast í eggjum, gírafar koma upp úr jörðinni. Og allt er öfugsnúið endalaust að snilldar bröndurum inn á milli.

Jæja stökkvum aðeins lengra inní þáttinn.

Þau eru að leita að stað eftir að hafa lent í smá veseni sem flóðhesti sem elta þau. Þau sjá rannsóknarstofu hjá konu sem rannsakar simpasa hún virðist ekkert eiga sér líf því svona átti dagurinn að vera hjá henni.

5:30, Watch the chimps
9:00, Drink water and eat roots
9:30, Watch Chimps until its bedtime and then go to sleep.

Síðan koma kallar sem virðast ætla að ræna simpösunum og fjölskyldan hjálpar konuni að vernda þá, með því að setja klút í kókoshnetu kveikja í og kasta yfir grindverkið þessari sprengju sem þeir gerðu. Marge & Lisa sitja upp í tré taka svona rör setja geitunga þar inn og skjóta þeim á dekkin á bílnum og smá svona fáranlegt að bíllin springur. Alveg drepfyndið að sjá þetta síðan kemst Lisa að þetta eru menn frá “Greenpeace” og þessi kona er búinn að þræla apana til að grafa upp demanta. Hún endar með að gefa þeim öllum helling að demöntum og stuff.

Aðal Galli: Maggie var ekki í Afríku ekkert sást til hennar eftir slysó dæmið. Ekkert sást að hún væri að fara í pössun.

Hvet alla til að sjá þennan þátt.