Þáttur 606 - Proffessor Chaos Þessi þáttur var á Popp Tíví rétt áðan og ætla ég að fjalla um hann. Ef einhver hefur ekki séð þennan þátt, hættu að lesa NÚNA (nema þú náttúrulega viljir vita söguþráðinn)

Í þessum þætti segja Stan, Kyle og Cartman honum Butters að hann geti ekki komið í staðinn fyrir Kenny sem vinur þeirra. Butters tekur þessu frekar illa og ákveður að leggja líf allra í rúst og verður að vonda kallinum Proffessor Chaos.

Á meðan þessu stendur þá eru Stan, Kyle og Cartman að halda keppni sem er mjög keimlík Bachelor/ette raunveruleikaþáttunum (augljóslega verið að gagnrýna það) það er meira að segja gefin rós til þeirra sem komast áfram!!!!!!Hehe

Butters finnur upp á virkilega “evil” áætlanir til að rústa lífum fólks og t.d. þá ruglaði hann súpupöntunum í veitingarstað og stal töfluþurrku úr kennslustofunni.

Mér fannst þessi þáttur vera í fínasta lagi og þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem þeir segja “fuck” í þáttunum (allavega miðað við það sem ég hef verið að fylgjast með). Hins vegar þá fannst mér vanta þetta sem var alltaf í endanum á þáttunum, en þá var boðskapur þáttarins alltaf sagður.

Ps. Ekki svara of harkalega, þetta er fyrsta umfjöllunin sem ég sendi á Southpark og ég er ekki reyndu í þáttaumfjöllunum.