Um leið og ég sá að South Park svæði hér á huga.is var opið, dreif ég mig þangað á eldingarhraða(samt ekki svo hröð tenging). Ég skoðaði síðuna vel og sá síðan að Stan vantaði í lógóið hérna efst á síðunni. Það eru nú allir strákarnir 4 sem South Park er frægt fyrir. Ég óska samt öllum hugurum til hamingju með frábært nýtt svæði og hvet alla til þess að nota það til að tala um South Park og reyna að sjá til þess að þetta áhugamál deyji ekki út.