Ég var að horfa á Friends um dagin og þegar Hank Alber Azaria eða Hank Azeria eins og við flest þekkjum hann kom sem “David” sem var með Phoebe einhverntíman í fyrstu seríu og það er alltaf jafn gaman að horfa á eitthvað sem þessi maður tekur þátt í (jafnvél í “Mistery men”) allavega… hann fæddist 25 Apríl 1964. Og eins og flestir vita talar hann fyrir þekktar og skemmtilegar persónur í Simpson eins og Apu Nahasapeemapetilon, Moe Szyslak, Police Chief Clancy Wiggum, Comic Book Guy, Carl Carlson, Dr. Nick Riviera, Snake, Professor John Frink, Cletus og fleiri skemmtilega. Fyrir framlag hans til þáttana hefur hann unnið til tvenn Emmy verðlauna sem hann á mjög vel skilið. hann var giftur Helen hunt í þrú ár en þau skildu svo árið 2000.

En þó að Hank er í vinnu þar sem sérst ekkert í hann hefur líka leikið í mörgum bíomyndum eins og t.d Pretty woman, the quis show, Heat, hann lék homma þjóninn í the birdcage, Grosse pointe blanke, Great Expectations, Godzilla, Cradle Will Rock, Mistery men (já ég veit) Mistery Alaska, America's Sweethearts og fleiri sem eru bara ekki þess virði að nefna eða ég er ekki búinn að sjá, og nokkrar sem eru ekki komnar út. En það er gaman að geta þess að þetta eru ekki allt grín myndir og Hank er ekkert síðri í Alvörunni eins og í gríninu. hann hefur komið sem gestaleikari í mörgum góðkunnum þáttum t.d Friends, Mad about you ofl.

Eins og flestir af þeim fáu sem tala fyrir einhvern í Simpsons fær hann $100.000 borgað fyrir hvern þátt og ég tel það mjög ólíklegt að honum leiðist vinnan eitthvað. Hver vill t.d ekki fá $100.000 fyrir að horfa á simpsons allan daginn?