Aðalstjarna Simpsons þáttanna er auðvitað höfuð fjölskyldunar,
sjálfur Homer Simpson. Í þætti sem nýlega var sýndur í
Bandaríkjunum var tölvupóstfangið hans gefið upp en það ku
vera chunkylover53@aol.com.

Í þættinum ræður Hómer einkaspæjara til að fylgjast með Lísu
og gefur hann spæjaranum upp þetta póstfang. Einn
aðstandenda þáttanna tók þetta póstfang frá á Aol og eftir að
þátturinn var sýndur var pósthólfið að sjálfsögðu orðið fullt af
skeytum frá æstum aðdáendum.

Reynt var að svara öllum skeytum en þeirri vinnu var líkt við starf
jólasveinsins.

MUNIÐ: chunkylover53@aol.com SENDIÐ og þér munið vera
svarað!! Hann svarar öllum, hann svaraði mér a.m.k.!!