Ég var bara að vellta því fyrir mér hvað ykkur fyndist og hvaða þáttur er ykkar uppáhaldsþáttur!

Minn er Mongolians þátturinn sem var ekki fyrir allöngu.
Það var þannig að það var næstum því búið að ræna Tweek og allir foreldrarnir voru í shocki og báðu Kínverja sem átti heima í South park að byggja vegg í kringum bæjinn eða svokallaðann city wall, hann var ekki allveg nógu ánægður með það en gerði það samt. En það voru alltaf einhverjir Mongolians að koma og brjóta niður vegginn hanns. Svo voru foreldrarnir alltaf e-ð að einangra börnin og e-ð. Mér fannst eiginlega bara mest fyndið “DAMN YOU MONGOLIANS!!!!”

Svo fannst mér líka Lord of the lord of the rings þátturinn æðislegur þegar foreldrar Stans settu óvart klámmynd í hulstrið á Lord of the rings spóluna og sendu strákana heim til Butters því hann ætlaði að fá hana lánaða og þeir lenntu í ýmsu á leiðinni með spóluna aftur á video leigunna því að þeir komust af því að spólan var með evil powers sem létu alla láta skringilega. The fellowship of the lord of the rings ;) Butters var lang fyndastur með “My precious” dæmið en auðvitað er þessi þáttur ekkert fyndinn ef maður er ekkert búinn að sjá Lord of the rings.

Síðasti þátturinn sem var sýndur á sýn var dáldið undarlegur en fyndinn með Lemmiwinks, þessi þáttur varð til þess að ég skírði gráu stökkmúsina mína Lemmiwinks sem ég var að fá :)

En mig langar að vita hvaða sería er ykkar uppáhaldssería og hvaða þættir eru ykkar uppáhalds :)