Ég hef séð þennan vírus áður. Hann gerir fleira en þetta. Td. sendir hann brot úr word skjölum, gömlum e-mailum, textaskrám ofl. út um allt. Hann tekur semsagt kannski eina setningu úr hverri skrá og setur saman í eitt kjaftæðis e-mail og sendir einhverjum. Ekki sniðugt ef þú ert með eitthvað leyndó ;)
Ég held að það eyði svo annaðhvort öllu innihaldi harða disksins eða þurrkar út BIOSinn (sem gerir tölvið þitt að grænmeti) eftir að hann er búinn að vera inni hjá þér í kannski 30 daga eða e-ð. Svo er hann líka þannig að hann gerir bara “random” skandal í hvert skipti sem að þú kveikir á tölvunni, ef ég man rétt…
Þessi vírus var í tölvu mömmu vinar míns… Ég hló mig máttlausann af þessu “forðast músabendilinn” dæmi og af því að hún var alltaf að fá e-mail frá fólki út í bæ sem spurði hana hvaða kjaftæði hún væri eiginlega alltaf að senda þeim :)
Ég man því miður ekki hvað vírusinn heitir en þú ættir að skanna með vírusvarnarforriti sem fyrst. Það væri líka sniðugt að formatta og skella Win2k eða XP í staðinn fyrir 98 ;)