Jæja. Ég var að fá tölvuna mína í dag (fartölva) og hún var sett upp með vista eins og næstum allar tölvur nú til dags og mig langar í xp. Mamma og pabbi eiga sko XP disk sem er þegar í notkun í annarri tölvu, get ég notað hann þó að hann sé þegar settur upp í annarri tölvu án þess að það verði einhver vandamál?