Þannig er mál með vexti að ég opnaði möppu úr tölvupósti en get síðan ekki opnað hana vegna þess að ég hef glatað tölvupóstinum, Ég tékkaði hvernig fæll þetta er og þá kemur fram að mappan er . XNK fæll eða fæll sem að vinnur með Microsoft Exchange eftir því sem ég best veit. Ég var bara að spá hvernig ég get opnað möppuna og notað innihald hennar án þess að þurfa að opna hana í upprunalegu tölvu sinni eða þar sem hún var upprunalega geymd..
Yrði MJÖG þakklátur ef einhver hérna gæti leiðbeint mér um hvað ég á að gera.

kv. Timpua