Stuðningur við Istorrent - Ekkert höfundarréttarvarið efni í jólagjöf Undanfarna daga hef ég verið að velta því fyrir mér hvernig við netverjar getum stutt við bakið á Istorrent í þeirri baráttu sem nú er í gangi. Ég veit að þeir hafa að baki mikinn stuðning netverja. Ekki vegna þess að menn séu að velta fyrir sér svo mikið um hvað er löglegt og ólöglegt, heldur fremur um almenna framgöngu fyrirtækja og einstaklinga sem eiga allt undir hlustun og horfun á því efni sem um ræðir.

Ég veit að margar hugmyndir hafa verið í gangi um beinan stuðning við Svavar. M.a er í gangi hugmynd að selja boli með hinum ýmsu áletrunum (ekkert ósiðlegt) sem myndu kosta það sama og geisladiskur út úr búð. Slagorð eins og Geisladisk í jólagjöf? Nei takk! Væri eitt dæmi.

Þá hefur einnig verið í gangi umræða um að netverjar almennt muni ekki kaupa höfundarvarið efni s.s. geisladiska eða myndbandsspólur þar sem þeir hagsmunaðilar sem nú standa í lögsókn á hendur Istorrent eru í raun beinir aðilar þeirra listamanna sem nú eru að gefa út efni fyrir þessa jólavertíð. Þá eru þeir sem eru á móti þessum aðgerðum einnig kvattir til að skila þess konar vörum ef þeir fá þær í jólagjöf og fá í staðinn erlent efni af sama toga eða kaupa sér góða bók í staðinn. Það er jú ekki tekið gjald af hverju auðu A4 blaði sem kemur til landsins þó svo hægt sé að nota það til að afrita bækur - líkt og gerist með geisladiska, harða diska, MP3 spilara og svo framvegis.

Eins og staðan er í dag er ekki litið á þetta sem herferð heldur frekar eitthvað sem við Netverjar ættum að velta fyrir okkur nú fram að jólaverslun. Hins vegar hef ég trú á að þessar hugmyndir gætu orðið að sterkum leik til að styðja við bakið á þeim sem á er ráðist líkt og gerst hefur með Istorrent í þessu máli með órökstuddum staðhæfingum og mjög svo hlutdrægu sjónarmiði af hálfu hagsmunasamtaka sem fyrst og síðast hugsa um að maka sinn eigin krók í stað þess að hugsa til neytenda.