Hvernig er hægt að færa lög frá einum iPod yfir á annann?

Ég á nefnilega tvo iPoda, einn nýjan og svo annann sem er nokkurra ára gamall en ég veit ekki hvernig ég get fært lög á milli þeirra.

Það eru nefnilega fullt af lögum inná gamla iPodnum sem ég get ekki sett inná nýja því að ég á ekki disk með þeim.

Ef einhver kann eitthvað á svona lagað eða veit jafnvel bara hvar er hægt að ná í gamlar útgáfur af iTunes (ég held nefnilega að þetta hafi verið hægt á eldri útgáfum, en það er ekki hægt á nýju) þá er öll hjálp vel þegin.