Ég er í smá vandræðum með PhotoShop, málið er það að mig langar að vinna með meira en eina mynd í senn en ég virðist bara geta opnað eina mynd í einu. Ég fer í Open og vel mynd, allt í lagi, geri eitthvað og ætla svo að opna nýja en þá hverfur þessi gamla.

Á maður ekki að hafa yfirsýn yfir þær í Layers niðri í hægra horninu?

Bætt við 16. ágúst 2007 - 23:51
Er einhvers staðar hægt að nálgast meiri upplýsingar um forritið, hjálparsíðu kannski, á íslensku?