afsakið ef það er búið að spyrja að þessu milljón sinnum hérna…en ég leitaði á huga og sú leit skilaði engum árangri.


var að pæla í acer fartölvu á ca. 80 þúsund kall með vista home basic, turion 2ghz örgjörva, 1 gb vinnsluminni, 120 g hörðum diski, og ati x1100 128 mb skjákorti

og spurningin er…eru þetta góð kaup?
er e-ð í pakkanum sem er drasl?
ég er ekki að leita að hinni fullkomnu tölvu svosem, mig langar bara að geta haft slatta af tónlist á henni, spilað cm, og farið á internetið, og þetta án þess að tölvan sé hæg eða bilandi.
svo er spurningin hvort þetta fæst ódýrara annars staðar. ég allavega rakst á þetta í office1