Ég veit ekki hvurn andskotann ég gerði, en með því að ýta á einhverja takka á lyklaborðinu tókst mér að snúa öllu á hvolf - bókstaflega.

Öll skjámyndin er á hvolfi. Ég er að skrifa þetta á hvolfi. Ég hef ekki hugmynd hvernig þetta gerðist þannig að ég hef ekki græna glóru hvernig ég á að laga þetta.

Og aldrei þessu vant virkar ekki að endurræsa gripinn, það er allt enn á hvolfi.

Þetta er ferlega óþægilegy og ekki nenni ég að vera að snúa fartölvunni alltaf tið þannig að ég geti séð almennilega hvað ég er að gera.

Hef einhver einhverja hugmynd hvernig ég laga þetta? 'eg veit ekkert hvað ég á að gera.

Snúið skjánum ykkar við og þá skyljiðið kannski hvað ég á við. Frekar mikið pirrandi.