Halló.

Ég keypti mér tölvu fyrir u.þ.b 2-3 árum og hefur hún alltaf virkað vel.
Núna síðastliðinn Maí gerðist einhvað ókunnugt mér,
tölvan slökkti á sér uppúr þurru ?!?!
ég hélt að þetta væri bara einhvað í snúrunum,svo að ég tók þær úr sambandi, skipti um fjöltengi o.s.f

Enn þetta hélt áfram, uppúr þurru slökkti hún á sér, þetta gæti verið eftir 15 mín, 5 klst, eða sólarhring.

Ég hélt að þetta væri viftan en það var skipt um viftu hálfu ári fyrr og allt virkaði vel þá.

og nú spyr ég ykkur, á ég að formatta hana ?, er hún ónýt eða ? hvað á ég að gera í þessu ?