Ég er með Pinnacle CN878 kort en er að lenda í vandræðum með tuner-inn. K!tv virðist ekki ná sambandi við tuner-inn og getur því ekki leitað. Aftur á móti ef ég set inn stöð á Pinnacle PCTV, slekk á því prógrammi og kveiki á K!tv þá er sama stöð þar og ég er ekki í lenda í vandamálum með afruglunina sjálfa (sem ég er eingöngu að kynna mér að sjálfsögðu en ekki að nýta mér í afþreyingarskyni). Sem sagt K!tv virðist fara inná tuner-inn á sjónvarpskortinu en ekki getað stjórnað honum. Dettur ykkur í hug hvað vandamálið gæti verið?