Góðan daginn!

Ég er í einhverju veseni: það kemur upp úr kafinu að G2 virkar ekki með athlon örgjöfum af einhverjum annarlegum ástæðum. Ég hef heyrt orðróm um að það sé til patch sem á að redda því svo ég crassi ekki alltaf í desktoppið þegar ég reyni að spila leiki.
Svo ég spyr: hefur einhver hugmynd um hvar ég get nálgast þennan patch? Eða hefur einhver átt við sama vandamál að stríða og náð að redda því?

Með fyrirfram þökkum

Gummi